Trio Krauka spilar í Sjóminjasafninu

VÍKINGAHLJÓMSVEITIN TRIO KRAUKA HELDUR TÓNLEIKA Í SJÓMINJASAFNINU Á HÚSAVÍK 23. JÚNÍ KL. 16

HVERNIG VAR TÓNLIST Á VÍKINGAÖLD?

Tríóið Krauka gefur tónrænt svar við þessari spurningu með spennandi og óhefðbundinni tónleikaupplifun þar sem tónar eru innblásnir af gömlum norrænum laglínum en textana má rekja til fornra sagna og norrænnar goðafræði. Gígja, handtrommur, skeljahorn og íslensk fiðla skapa einstakan hljóðheim Tríós Krauka, þar sem æsir, risar og álfar lifna við.

Miðasala við innganginn

Verið velkomin