Viltu afhenda skjöl?

Viltu afhenda skjöl?

Héraðsskjalasafnið tekur við skjölum einstaklinga, félagasamtaka, fyrirtækja og annars, sem þykja hafa gildi fyrir sögu umdæmisins og/eða íbúa þess.

Dæmi um merk einkaskjöl geta verið dagbækur, bréfasöfn, bókmenntahandrit, sveitarblöð, ættfræði, búreikningar o.fl. Engu máli skiptir hvaða stöðu einstaklingurinn hefur, né aldur eða kyn og hversu mikið um er að ræða.

Í reglugerð er kveðið á um að félögum sem njóti opinberra styrkja beri að skila inn sínum gögnum á héraðsskjalasafn. Það er væntanlega metnaðarmál hvers félags að skilja eftir sig merki um starfsemina og að skjöl þess séu varðveitt. Oft er það svo að skjöl félags flytjast hús úr húsi með formönnum og jafnvel gleymast eða týnast við þær aðstæður. Koma má í veg fyrir slíkt með því að fela opinberu skjalasafni varðveislu gagnanna. Hið sama á við um skjöl fyrirtækja.

Þegar skjöl eru afhent til varðveislu á Héraðsskjalasafnið er litið svo á að um gjöf sé að ræða og sérstakur afhendingablað er fyllt út. Ef einstaklingar hafa í fórum sínum skjöl sem ætla má að hafi varðveislugildi er fyrsta skrefið að hafa samband við safnið. Síðan ræðst það af aðstæðum hvert næsta skref verður, t.d. hvernig gengið er frá skjölunum áður en til afhendingar kemur.

Móttökueyðublaðið má finna hér.