Tjörneshreppur

Tjörneshreppur

Tjörneshreppur er hreppur í Suður-Þingeyjarsýslu. Nær hann yfir norður- og vesturströnd Tjörness að Héðinsvík norðan Húsavíkur og einnig yfir megnið af fjalllendinu sem á skaganum er.

Tjörneshreppur í núverandi mynd var stofnaður árið 1912 þegar Húsavíkurhreppi var skipt í tvo hluta. Hreppinn mynduðu sveitirnar norðan og sunnan Húsavíkur, Tjörnes og Reykjahverfi, en Húsavíkurkauptúnið ásamt næsta nágrenni þess hét áfram Húsavíkurhreppur og lá hann eins og fleygur í gegnum miðjan Tjörneshrepp eins og hann var þá. Svo fór, að hreppnum var aftur skipt í tvennt 1. janúar 1933 og varð þá syðri hlutinn, Reykjahverfi, að Reykjahreppi. Frá því á 11. öld var svæðið frá jörðinni Máná nyrst á Tjörnesi, byggðin með strönd nessins að vestan allt að botni Skjálfandaflóa og Reykjahverfi til og með gömlu jörðinni Reykjum þar í hverfinu, eitt sveitarfélag sem þá nefndist Tjörneshreppur, stundum á síðari árum nefndur Tjörneshreppur hinn forni. Á 18. eða 19. öld breyttist nafnið í Húsavíkurhrepp en þar var þingstaður hreppsins og 1912 þegar þéttbýlið í Húsavík varð sérstakt sveitarfélag hélt það eðlilega því nafn


Bréfabækur    
   

Bréfabók Tjörneshrepps 1912-1939

HérÞing. HRP-90/4 Tjörneshreppur. Gjörðabók Tjörneshrepps 1912-1939.

   

Gjörðabækur    
   

Gjörðabók Tjörneshrepps 1912-1933

HérÞing. HRP-167/7 Tjörneshreppur. Gjörðabók Tjörneshrepps 1912-1933.

   

Skýrslubækur    
   

Skýrslubók Tjörneshrepps 1925-1968

HérÞing. HRP-42/5 Tjörneshreppur. Skýrslubók Tjörneshrepps 1925-1968.