Þar rauður loginn brann

Það verður ævintýraleg stemmning í Safnahúsinu á Húsavík þegar álfmeyjar stíga á stöpla í fordyri.

Um er að ræða útskorin listaverk Ingibjargar Helgu Ágústdóttur frá Stykkishólmi sem hefur nú gert danskvæðið um Ólöfu liljurós að viðfangsefni sínu.

Verið hjartanlega velkomin í heimsókn á Mærudögum.