Opnun laugardaginn 1. júní - Marta Florczyk

Verið velkomin á opnun sýningar Mörtu Florczyk Í SKUGGANUM.
- Myndlistarsalurinn-
Safnahúsinu á Húsavík
Laugardaginn 1. júní kl. 15
 
Léttar veitingar í boði
Verið öll velkomin!
____________________________________________
You are invited to the opening of Marta Florczyk´s exhibition IN THE SHADOW at the Husavik Museum Saturday June 1 at 3pm.
 
Light refreshments on offer.
 
All welcome!
 

MARTA FLORCZYK

Húsvíska listakonan Marta Florczyk er fædd í Póllandi árið 1984 en hefur verið búsett á Íslandi síðastliðin 18 ár. Hún er menntuð í menningarstjórnun og grafík en hefur síðustu misseri snúið sér af krafti að listsköpun sinni. Marta var listamaður Norðurþings árið 2022.

„Málverk er ástríða mín og mín leið til dýpstu tjáningar. Ég varð ekki listakona með tímanum heldur fæddist ég listakona og hef alltaf vitað af því. En það voru erfið tímabil í lífinu þar sem skapandi orkan læstist inni og listamannssálin var í skugga sökum erfiðisvinnu og stöðugrar þreytu“.

Á sýningunni má líta fígúratíf málverk sem eru meðal annars unnin abstrakt, en einnig teikningar og grafík, sem vísa til þessa flókna tímabils í lífi Mörtu. Verkin eru myndræn lýsing á því hvernig það var fyrir listakonuna að stíga úr skugganum og finna köllun sína, leið í lífinu og mæta örlögum sínum.

____________________________________________

Residing in Húsavík, the artist Marta Florczyk was born in Poland in 1984 but has lived in Iceland for the past 18 years. Her educational background is in cultural management and graphic design, but for the past few years, she has focused on her artistic creations. Marta was honored as the Artist of the Year in the Norðurþing municipality in 2022.

“Painting is my passion and serves as my most profound mode of expression. I didn’t grow into an artist gradually; rather, I’ve always known within myself that I was inherently born an artist. Nevertheless, there were times in my life when creative inspiration felt trapped, and the artist within me grappled with shadows, burdened by relentless labor and constant fatigue.”

The exhibition features abstract figurative paintings as well as drawings and prints, all of which pertain to this complex period in Marta’s life. The works are visual depictions of how it was for the artist to step out of the shadow and find her voice and path in life.