Sýningin Margslunginn einfaldleiki leiðir saman verk tveggja vina og áhrifamikilla listamanna, Tryggva Ólafssonar og Thors Vilhjálmssonar.
Í verkum þeirra birtist lifandi samtal milli myndlistar og bókmennta, þar sem litir, form og orð fléttast saman. Þeir skreyttu bækur hvors annars og deildu djúpum áhuga á listinni sem tjáningarformi, hver á sinn hátt.
Heiti sýningarinnar er sótt í skrif Thors um list Tryggva og fangar kjarnann í verkum hans, einfaldleika sem geymir margbrotinn og persónulegan heim.
Sýningin er einstakt tækifæri til að kynnast þessari tengingu og upplifa hvernig vinátta og samvinna mótuðu verk tveggja af helstu listamönnum þjóðarinnar.
Sýningarstjóri er Örlygur Hnefill Örlygsson.
