Kvenfélagið Aldan færir Menningarmiðstöð Þingeyinga rausnarlega gjöf

Kvenfélagið Aldan á Tjörnesi veitti MMÞ peningagjöf að fjárhæð 1.000.000 til kaupa á ljósum í Sjóminjasafn. Elísabet Sigurðardóttir og Erla Bjarnadóttir mættu f.h. kvenfélagsins á aðalfund MMÞ í síðastliðinni viku og afhentu gjöfina. Það er virðingarvert að kvenfélagið styðji við menningarmál í héraði og er starfsfólk og stjórn MMÞ afar þakklátt fyrir styrkinn, sem verður vel nýttur til enn betri miðlunar á menningu og sögu svæðisins.