Heimsóknir í Hvamm

Samstarf við suma af eldri og heldri borgurum héraðsins er hafið aftur eftir sumarfrí og fer fram á Dvalarheimilinu Hvammi. Fræðslufulltrúinn okkar hún Erika Lind Isaksen heimsótti góðan hóp sem þekkti eitt og annað sem upp úr kistunni kom að þessu sinni, mest tæki og tól er tilheyrðu gamla bændasamfélaginu.
(myndir birtar með leyfi frá Hvammi)