OPNUN 2. DESEMBER - Valtýr Pétursson

VALTÝR PÉTURSSON
UMRÆÐUR OG RIFRILDI
2. desember 2023 - 30. mars 2024

Þér er boðið á aðventuopnun í Safnahúsinu á Húsavík
laugardaginn 2. desember kl. 14

Verið velkomin!
Léttar veitingar í boði

Þann 3. nóvember 1980 færði listmálarinn Valtýr Pétursson Safnahúsinu á Húsvík 22 myndlistarverk að gjöf sem jafnframt voru veigamesta gjöfin í stofnun Myndlistarsafns Þingeyinga. Sýning á þessum einstöku verkum var opnuð á fyrsta starfsári Safnahússins, nánar tiltekið í nóvember 1980, í myndlistarsalnum á 3. hæð sem helgaður var myndlist frá upphafi.

Við endurtökum nú leikinn og sýnum aftur 22 dýrmæt verk Valtýs Péturssonar, sem við vonumst til að „veki bæði umræður og rifrildi í Þingeyjarsýslum“, eins og hann sjálfur komst að orði í ávarpi sem hann flutti við opnun sýningarinnar fyrir 43 árum. Verkin eru fjölbreytt, unnin á tímabilinu frá 1946 til 1978 og ná því yfir mestallan feril listamannsins.