|
Tuesday, 19 February 2013 08:20 |
Þjóðfræði á þorraþræl
Fjölbreytt og áhugaverð erindi um viðfangsefni þjóðfræðinnar
Þjóðfræði er vaxandi fræðgrein á landinu og ekki síst hér í Þingeyjarsýslum. Hópur þingeyinga stundar nú nám í greininni og nokkrir hafa lokið námi. Hluti þingeysku þjóðfræðinemana er í fjarnámi en aðrir eru í höfuðborginni við nám. Þetta er öflugur hópur og hver veit hvað verður til í þessari þingeysku þjóðfræðingaflóru í framtíðinni. En hvað skyldi vera svona heillandi við þetta fag og hvað er verið að fást við? Gjarnan er rætt við þjóðfræðinga í tengslum við jólasveinana, bóndadag, þorrablót og annað gamalt og hefðbundið. En skyldi það gefa tæmandi mynd af þjóðfræðinni og starfi þjóðfræðinga? Því er fljótsvarað með: „Nei langt því frá“. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og eru skoðuð bæði í fortíð og nútíð. Meðal þeirra má nefna: sögur og sagnir, heimilis- og atvinnuhættir, trú og tónlist, siðir og venjur, hátíðir og leikir, klæðnaður og matarhættir.
Menningarmiðstöð Þingeyinga blæs til þjóðfræðidags til að kynna þjóðfræðina og viðfangsefni hennar, enda er þjóðfræði og safnastarf tengt nánum böndum. Hann verður haldinn á Þorraþræl, síðasta dag þorra, sem er næstkomandi laugardag. Þá munu þjóðfræðingar og þjóðfræðinemar halda fjölbreytt erindi um viðfangsefni þjóðfræðinnar í Safnahúsinu á Húsavík.
Safnahúsinu á Húsavík 23. febrúar, kl 14-17
Dagskrá: 14:00 Inngangsspjall
14:05 - 14:20 Þjóðfræði, spennandi og fjölbreytt viðfangsefni Búi Stefánsson þjóðfræðinemi
14:20 – 14:35 Hlutverk hátíða Anna Gunnarsdóttir þjóðfræðinemi
14:35 – 14:50 Lifandi safn Jan Klitgaard þjóðfræðinemi
14:50 – 15:05 Týnda samfélagið – Kárahnjúkar Hilda Kristjánsdóttir þjóðfræðingur
14:05 – 15:20 fyrirspurnir
15:20 – 15:40 Kaffihlé
15:40 – 16:10 "Menningararfur í formi íslensks hraungrýtis : Hraunsréttardeilan í Aðaldal" Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur. Gerð var var stuttmynd um verkefnið og verður hún sýnd í upphafi erindisins, hana gerðu þjóðfræðingarnir Björk Hólm og Ólafur Ingibergson.
16:10 – 16:50 Hvað á á gera við afa? umfjöllun um hlátur, húmor og tengsl við samfélagið. Kristín Einarsdóttir aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands
16:40 – 17:00 fyrirspurnir og spjall
Allir velkomnir enginn aðgangseyrir
|
|
|
Rímur og rokk hlýtur styrk frá Menningarráði Eyþings |
|
Monday, 18 February 2013 00:00 |
Rímur og rokk hlýtur styrk frá Menningarráði Eyþings
Verkefnið „Rímur og rokk“ er eitt þeirra 57 spennandi menningarverkefna sem hlutu styrk úr Menningarsjóði Eyþings nú á dögunum. Úthlutunarhátíð var haldinn í Tjarnarborg á Ólafsfirði þann 7. febrúar sl. Hátíðin var að vanda glæsileg og heimamenn tóku höfðinglega á móti styrkþegum.

Verkefnið „Rímur og rokk“ sem hófst árið 2012 er samstarfsverkefni milli Kaupvangs á Vopnafirði og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Frumkvæði að verkefninu hafði Sigríður Dóra Sverrisdóttir á Vopnafirði. Markmið verkefnisins er að viðhalda þeirri menningararfleifð sem rímur, ferskeytlur, limrur og þulur eru.

Fimm daga námskeið fyrir ungmenni verður haldið á Vopnafirði í byrjun júní. Leiðbeinendur verða þekktir listamenn, bæði heimamenn og lengra að komnir. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að tileinka sér kveðskap, leika sér með textann í kveðskapnum og búa til nýja tónlist sem byggir á kveðskapararfleifðinni. Að þessu sinni býðst ungmennum frá Vopnafirði, Bakkafirði, Þórshöfn, Kópaskeri og Raufarhöfn að taka þátt í námskeiðinu. Einnig munu 6 ungmenni frá Norður Noregi taka þátt. Lokaafrakstur verður hátíð á Vopnafirði og Raufarhöfn í júní 2013. Vonir standa til að hægt verði að senda íslensku krakkana til Noregs í ágúst 2013.
Mörg önnur spennandi verkefni úr Þingeyjarsýslum fengu styrk úr Menningarsjóði Eyþings að þessu sinni. Þar á meðal fékk Safnaþing, sem er samstarf safna og sýninga á svæðinu, styrk til að standa að sameiginlegri dagskrá á haustdögum. Lista yfir öll verkefni sem fengu styrk má sjá á heimasíðu Eyþings www.eything.is.
|
|
Greiningarsýningin nú á netinu |
|
Tuesday, 29 January 2013 17:33 |
Greiningarsýning á ljósmyndum Silla
Greiningarsýningin á ljósmyndum úr ljósmyndasafni Sigurðar Péturs Björnssonar sem opnuð var síðastliðinn sunnudag er nú aðgengileg hér á heimasíðu Safnahússins.

Til að skoða hana þá smellið á þessa mynd. |
|
|
|
|
|
|
Page 4 of 34 |