|
The Minister of Education, Science and Culture visits the Culture House |
|
Tuesday, 25 September 2012 13:18 |
The Minister of Education, Science and Culture visits the Culture House.
Katrín Jakobsdóttir minister of Education, Science and Cultre, Elías Jón Guðjónsson political Advisor of the minister and Guðni Tómasson culture advisor of the minister visited the Culture House last thursday.

|
|
|
Wednesday, 22 August 2012 12:14 |
The love of Iceland in Ameríka - Íslendingar í Ameríku
Föstudaginn 24. ágúst kl. 17:00 mun Sunna Pam Furstenau halda fyrirlestur í Safnahúsinu á Húsavík. Sunna Pam er fulltrúi Þjóðræknifélags íslendinga í Ameríku og starfar að rannsóknum á landnámi og sögu íslendinga í vesturheimi. Hún er á fyrirlestrarferðalagi um Ísland og flytur erindið á 12 stöðum. Fyrirlesturinn byggir á myndasýningu með 400 myndum sem Sunna Pam gæðir lífi með tengdum frásögnum.
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
|
|
Sunday, 08 July 2012 21:37 |
Safnaverðlaunin 2012

Byggðasafn Suður-Þingeyinga fékk í dag Safnaverðlaunin 2012 fyrir sýninguna "Mannlíf og Náttúra. 100 ár í Þingeyjarsýslum" í Safnahúsinu á Húsavík. Forseti Íslands afhenti forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, Sif Jóhannesdóttir, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að safnið hljóti verðlaunin fyrir nýja grunnsýningu sem ber yfirskriftina Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum og stendur í Safnahúsinu á Húsavík. Við gerð sýningarinnar er valin sú leið að draga upp mynd af sögu byggðarinnar í samspili manns og náttúru í stað hefðbundinnar aðgreiningar á menningu og náttúru. Menningarminjar og náttúrugripir eru þannig settir í nýtt og spennandi samhengi.
„Uppsetning sýningarinnar er þaulhugsuð og aðlaðandi. Sýningarrýmið er haganlega nýtt þannig að sýningargripir og textar vekja forvitni gesta. Sérkennum svæðisins og náttúrunýtingu eru gerð góð skil og á textaspjöldum eru frásagnir heimafólks sem gefa trúverðuga mynd og bregða ljósi á sögu svæðisins á tímabilinu 1850-1950. Að baki sýningarinnar liggur hugmyndavinna hóps einstaklinga sem koma úr ýmsum áttum og leggja til verkefnisins reynslu á sviði ólíkra fræðigreina, lista og hönnunar. Sú vinna skilaði sér í fjölbreyttri og ferskri nálgun og fleiri sjónarhornum en oft sjást í sýningum af þessum toga.
|
|
Read more...
|
|
|
|
|
|
|
Page 9 of 34 |