Forsíða

Óþekktar myndir

Auglýsing

Fréttir frá MMÞ

Nafn:
Netfang:
Fréttir
Fimmtudagur, 14. mars 2013 12:44

Myndlistarsýning - Frímann Kokkur

Fimmtudaginn 14. mars kl. 16:00 mun Frímann opna myndlistarsýningu á jarðhæð Safnahússins. Um 30 vatnslitamyndir verða á sýningunni sem er sölusýning. Frímann hefur haldið fjölda sýninga á Húsavík og Neskaupstað.

Frímann Kokkur - mynd frá 641.is

Sýningin verður opin alla daga frá 14:00 - 18:00 (líka um helgina) til 21. mars.

 
Þriðjudagur, 05. mars 2013 11:45

Landinn í heimsókn í Ljósmyndasafni Þingeyinga

Í síðasta sjónvarpsþætti Landans var innslag um Ljósmyndasafn Þingeyinga og óþekktar ljósmyndir. Það var gaman að fá þau Þórgunni Oddsdóttur og Gunnlaug Starra Gylfason í heimsókn til okkar og þökkum við þeim fyrir að vekja athygli á nauðsyn þess að afla upplýsinga um óþekktar ljósmyndir í ljósmyndasöfnum.

 

Innslagið í þættinum má sjá með því að smella á eftirfarandi mynd:

Landinn

http://www.ruv.is/sarpurinn/landinn/03032013/gamlar-ljosmyndir-thingeyinga

 
Þriðjudagur, 19. febrúar 2013 08:20

Þjóðfræði á þorraþræl

 

Fjölbreytt  og áhugaverð erindi um viðfangsefni þjóðfræðinnar

Þjóðfræði er vaxandi fræðgrein á landinu og ekki síst hér í Þingeyjarsýslum. Hópur þingeyinga stundar nú nám í greininni og nokkrir hafa lokið námi. Hluti þingeysku þjóðfræðinemana er í fjarnámi en aðrir eru í höfuðborginni við nám. Þetta er öflugur hópur og hver veit hvað verður til í þessari þingeysku þjóðfræðingaflóru í framtíðinni. En hvað skyldi vera svona heillandi við þetta fag og hvað er verið að fást við?  Gjarnan er rætt við þjóðfræðinga í tengslum við jólasveinana, bóndadag, þorrablót og annað gamalt og hefðbundið. En skyldi það gefa tæmandi mynd af þjóðfræðinni og starfi þjóðfræðinga?  Því er fljótsvarað með: „Nei langt því frá“. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og eru skoðuð bæði í fortíð og nútíð. Meðal þeirra má nefna: sögur og sagnir, heimilis- og atvinnuhættir, trú og tónlist, siðir og venjur, hátíðir og leikir, klæðnaður og matarhættir.

Menningarmiðstöð Þingeyinga blæs til þjóðfræðidags til að kynna þjóðfræðina og viðfangsefni hennar, enda er þjóðfræði og safnastarf tengt nánum böndum.  Hann verður haldinn á Þorraþræl, síðasta dag þorra, sem er næstkomandi laugardag. Þá munu þjóðfræðingar og þjóðfræðinemar halda fjölbreytt erindi um viðfangsefni þjóðfræðinnar í Safnahúsinu á Húsavík.


Safnahúsinu á Húsavík 23. febrúar, kl 14-17

Dagskrá:
14:00  Inngangsspjall

14:05 - 14:20 Þjóðfræði, spennandi og fjölbreytt viðfangsefni
Búi Stefánsson þjóðfræðinemi

14:20 – 14:35 Hlutverk hátíða
Anna Gunnarsdóttir þjóðfræðinemi

14:35 – 14:50  Lifandi safn
Jan Klitgaard þjóðfræðinemi

14:50 – 15:05 Týnda samfélagið – Kárahnjúkar
Hilda Kristjánsdóttir þjóðfræðingur

14:05 – 15:20 fyrirspurnir

15:20 – 15:40 Kaffihlé

15:40 – 16:10 "Menningararfur í formi íslensks hraungrýtis : Hraunsréttardeilan í Aðaldal"
Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur.
Gerð var var stuttmynd um verkefnið og verður hún sýnd í upphafi erindisins, hana gerðu þjóðfræðingarnir Björk Hólm og Ólafur Ingibergson.

16:10 – 16:50 Hvað á á gera við afa?  umfjöllun um hlátur, húmor og tengsl við samfélagið.
Kristín Einarsdóttir aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands

16:40 – 17:00 fyrirspurnir og spjall

Allir velkomnir enginn aðgangseyrir

 
Mánudagur, 18. febrúar 2013 00:00

Rímur og rokk hlýtur styrk frá Menningarráði Eyþings


Verkefnið „Rímur og rokk“ er eitt þeirra 57 spennandi menningarverkefna sem hlutu styrk úr Menningarsjóði Eyþings nú á dögunum. Úthlutunarhátíð var haldinn í Tjarnarborg á Ólafsfirði þann 7. febrúar sl. Hátíðin var að vanda glæsileg og heimamenn tóku höfðinglega á móti styrkþegum.

Frá úthlutunarhátíðinni á Ólafsfirði


Verkefnið „Rímur og rokk“ sem hófst árið 2012 er samstarfsverkefni milli Kaupvangs á Vopnafirði og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Frumkvæði að verkefninu hafði Sigríður Dóra Sverrisdóttir á Vopnafirði. Markmið verkefnisins er að viðhalda þeirri menningararfleifð sem rímur, ferskeytlur, limrur og þulur eru.

Frá námskeiðinu á Vopnafirði á síðasta ári.

Fimm daga námskeið fyrir ungmenni verður haldið á Vopnafirði í byrjun júní. Leiðbeinendur verða þekktir listamenn, bæði heimamenn og lengra að komnir. Þar gefst þátttakendum tækifæri til að tileinka sér kveðskap, leika sér með textann í kveðskapnum og búa til nýja tónlist sem byggir á kveðskapararfleifðinni. Að þessu sinni býðst ungmennum frá Vopnafirði, Bakkafirði, Þórshöfn, Kópaskeri og Raufarhöfn að taka þátt í námskeiðinu. Einnig munu 6 ungmenni frá Norður Noregi taka þátt.
Lokaafrakstur verður hátíð á Vopnafirði og Raufarhöfn í júní 2013. Vonir standa til að hægt verði að senda íslensku krakkana til Noregs í ágúst 2013.

Mörg önnur spennandi verkefni úr Þingeyjarsýslum fengu styrk úr Menningarsjóði Eyþings að þessu sinni.  Þar á meðal fékk Safnaþing, sem er samstarf safna og sýninga á svæðinu, styrk til að standa að sameiginlegri dagskrá á haustdögum. Lista yfir öll verkefni sem fengu styrk má sjá á heimasíðu Eyþings www.eything.is.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 2 af 26
 
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing