|
Miðvikudagur, 02. nóvember 2011 00:00 |
|

Árbók Þingeyinga 2010 - árgangur LIII er komin út.
|
|
Nánar...
|
|
|
Föstudagur, 14. október 2011 08:56 |
|
Margmiðlunarefnið á snertiskjánum á Samvinnusýningunni hefur nú verið uppfært. Efnið sem nú bætist við fjallar um tímabilið 1920-1940.

Mikill fjöldi ljósmynda og myndbanda bætast við í þessum áfanga. Fjallað er m.a. um fyrstu útibú K.Þ., ullariðnað á Húsavík, fyrstu rafstöðvar í Þingeyjarsýslum og Sýslubókasafnið. Gagarín ehf sá um efnið en Björn Teitsson ritaði textann. Þriðji og síðasti hlutinn verður tilbúinn í febrúar 2012 en þá verða 130 ár liðinn síðan að undirritaður var samningur í Þverárstofu um fyrsta kaupfélagið. |
|
Miðvikudagur, 12. október 2011 00:00 |
|
31.árgangur af Safna er kominn út. Safni er fréttablað Menningarmiðstöðvar Þingeyinga þar sem hverju starfsári er gert skil í máli og myndum. Safni er ókeypis hefur komið óslitið út síðan 1981.

Í þessu fréttablaði eru fjallað um nýja grunnsýningu Safnahússins "Mannlíf og náttúra - 100 ár í Þingeyjarsýslum". Í blaðinu eru einnig birtar nokkrar myndir úr ljósmyndasafni Sigurðar Péturs Björnssonar en við andlát hans 2007 féll allt ljósmyndasafn Silla Menningarmiðstöðinni í skaut. |
|
Föstudagur, 30. september 2011 00:00 |
|
Mikið fjör hefur verið í safnfræðslu þessa vikuna. Sýningin Fornleifar í Þingeyjarsýslum verður tekin niður í byrjun næstu viku og því voru kennarar hvattir til að heimsækja safnið með sína nemendur. Elsta deildin á Grænuvöllum, Hóll, heimsótti safnið í þremur hópum, alls 31 barn. Krakkarnir skoðuðu bæði fornleifasýninguna og sýninguna „Að kvöldi réttardags” og voru áhugasöm, spurul og hress.

Húsið iðaði svo af lífi og fjöri á fimmtudagsmorgun þegar 40 barna hópur úr Borgarhólsskóla og Grunnskólanum á Raufarhöfn kom í heimsókn. Meginviðfangsefni heimsóknarinnar voru eins og hjá leikskólahópunum sérsýningarnar 2. Einnig var aðeins farið á sjóminjasafnið og margir höfðu gríðarlega mikinn áhuga á því sem þar er að sjá.
Allir þessir 70 krakkar sem heimsótt hafa safnið í vikunni voru til fyrirmyndar og ánægjulegt að fá svona líflega og skemmtilega hópa í heimsókn. |
|
|
|
|
|
|
Síða 15 af 26 |