|
Fimmtudagur, 29. mars 2012 12:18 |
|
Ingvar Þorvaldsson opnar nk. laugardag 31. mars málverkasýningu í Safnahúsinu á Húsavík. Þar sýnir hann fjölmargar olíu- og vatnslitamyndir, en sýningin verður bæði í sýningarsal á efstu hæð og í sýningarrými á jarðhæð. Ingvar er fæddur og uppalinn á Húsavík og eru margar myndirnar hans héðan af heimaslóðum. Ingvar hélt sína fyrstu málverkasýningu hér á Húsavík og hefur síðan haldið yfir 40 sýningar víða um land.
Sýningin verður opnuð klukkan 15 á laugardaginn og verður opin til 9. apríl frá 15-18 alla daga. |
|
|
Föstudagur, 23. mars 2012 15:56 |
|
Safnahúsið verður opið sunnudaginn 25. mars frá 13:00 - 17:00, eins og venjulega síðasta sunnudag hvers mánaðar. Tilvalið tækifæri til þess leggjast í grúsk í margmiðlunarefni Samvinnusýningarinnar, heilsa upp á ísbjörninn og finna sjóarann í sér brjótast fram í sjóminjasafninu.
|
|
Föstudagur, 23. mars 2012 09:14 |
|
Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar í Suður-Þingeyjarsýslu verður haldinn í Safnahúsinu föstudaginn 23. mars kl 14:00. Sigurður Aðalgeirsson frá Skólaskrifstofu Norðurþings stýrir keppninni. Auk þess sem gestum hátíðarinnar gefst tækifæri til að hlýða á góðan upplestur verður boðið upp á tónlistaratriði.

Tilgangurinn með keppninni er þrenns konar. Þ.e. að vekja athygli og áhuga á lestri. Í öðru lagi að læra að njóta þess að lesa og í þriðja lagi að efla virðingu fyrir málinu og sjálfum sér. Hátíðin er öllum opin. |
|
Fimmtudagur, 15. mars 2012 09:42 |
|
Hér má sjá 26 ljósmyndir þar sem ekki er vitað hvaða fólk er myndefnið. Vitað er að hluti þeirra (myndir 001-138 til 001-151) tengjast Breiðuvík á Tjörnesi.
Allar ábendingar eru vel þegar hvort sem þær eru sendar á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringt í síma 464-1860 og beðið um Snorra. Athugið að skráningarnúmer myndana stendur fyrir neðan þær og þarf það númer að fylgja ábendingum.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 11 af 26 |