Forsíða

Óþekktar myndir

Auglýsing

Fréttir frá MMÞ

Nafn:
Netfang:
Fréttir
Föstudagur, 17. maí 2013 13:38

Systur sýna

Systurnar Áslaug Anna Jónsdóttir og Rósa Sigrún Jónsdóttir opna samsýningu í Safnahúsinu sunnudaginn 19. maí milli 14 – 17.

 

Sýningin stendur í sumar og er opin alla daga milli 10 og 16 til 29. maí og svo

alla daga milli 10 og 18 til 1. sept.

Verið velkomin

 
Þriðjudagur, 14. maí 2013 13:27

Heildarútgáfa á Boðbera K.Þ.

Boðberi

Nýlega barst Héraðsskjalasafni Þingeyinga heildarútgáfa á Boðbera K.Þ. Útgáfa blaðsins hófst 1933 og var tilgangur þess að bera boð frá stofnuninni til félagsmannana. Strax í upphafi birtust auglýsingar í blaðinu og á meðfylgjandi mynd má t.d. sjá auglýsingar um hljómplötur og kýr.

 
Miðvikudagur, 08. maí 2013 11:00

Ný greiningarsýning á ljósmyndum úr ljósmyndasafni Sigurðar Péturs Björnssonar

 

Ný greiningarsýning á ljósmyndum Silla er nú komin á vef Menningarmiðstöðvarinnar. Á sýningunni eru 117 ljósmyndir sem Silli tók á tímabilinu 1940-1980.

 

Hægt er að skoða hana með því að velja "Óþekktar ljósmyndir" hér til hliðar og síðan "Greiningarsýningar" eða með því að smella á meðfylgjandi ljósmynd.

 
Mánudagur, 22. apríl 2013 13:01

Ný greiningarsýning úr ljósmyndasafni Silla, bókamarkaður og Hemminn, gleðigjafi.

Sumardaginn fyrsta verður opnaður bókamarkaður á jarðhæð og ný greiningarsýning á ljósmyndum á  3. hæð. Myndirnar á sýningunni og bækurnar á markaðnum eru hvoru tveggja hluti af rausnarlegri gjöf Silla til Safnahússins.  Mikill fjöldi bóka verður á markaðnum, sagnfræði, ættfræði, skáldsögur, ljóð og margt fleira.

 

Skyldu þessir menn hafa verið að fara með sokka í viðgerð?

 

Sýning Gerðu á „Hemmanum“  stendur til sunnudagsins 28. apríl.


Markaðurinn og sýningarnar verða opnar sumardaginn fyrsta kl. 13-16, föstudaginn 26.  apríl kl. 10-18 og helgina 27.-28. apríl kl. 13-16.
Frítt verður inn á fastasýningar í Safnahúsinu sumardaginn fyrsta og um helgina.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 1 af 26
 
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing