Tónleikar með sönglögum úr heftinu ÞRÁ eftir Maríu Elísabetu Jónsdóttur frá Grenjaðarstað.
Flytjendur eru Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir, söngur og Helga Kvam, píanó
Þrá er fyrsta sönglagahefti sem kemur út á Íslandi eftir kventónskáld
Tónleikar í hlöðunni (þjónustuh.) á Grenjaðarstað mánudaginn 19. júní klukkan 20 og í Hlöðunni í Litla Garði á Akureyri miðvikudaginn 21. júní klukkan 20.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.

María Elísabet Jónsdóttir fæddist 1869 og er fyrst kvenna á Íslandi til að fá tónverk birt á prenti, sönglag hennar Farfuglarnir birtist í Óðni 1915. María Elísabet var prestfrú á Grenjarstað, stjórnaði þar kirkjukór og lék á orgel. Hún samdi nokkur sönglög sem komu út í litlu hefti undir titlinum Þrá árið 1949 þar sem Árni Björnsson útsetti píanóundirleik við lögin, 4 árum eftir andlát hennar. Þrá er fyrsta sönglagahefti sem kemur út á Íslandi eftir kventónskáld, þar sem María Elísabet semur lög við texta Huldu, Davíðs Stefánssonar, Jóns frá Hrafnagili og Páls J. Árdal.
Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir, söngkona og Helga Kvam, píanóleikari hafa unnið með útsetningar Árna og bætt við sínum eigin. Dagskráin verður í tali og tónum, þar sem líf og störf Maríu Elísabetar eru kynnt á stuttri kvöldstund.
Tónleikar verða haldnir á Grenjaðarstað á degi réttindabaráttu kvenna, mánudaginn 19. júní klukkan 20:00 og í Hlöðunni í Litla Garði á Akureyri fmiðvikudaginn 21. júní klukkan 20:00.
Allar frekari upplýsingar gefur Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir í síma 865 2130 eða
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Tónleikarnir eru styrktir af Norðurorku, Akureyrarstofu og Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. |