|
Miðvikudagur, 06. júní 2012 00:00 |
|

|
|
|
Föstudagur, 01. júní 2012 00:00 |
|
Laugardaginn 2. júní 2012 mun ljósmyndaklúbbnum Norðurljósum opna sína fyrstu ljósmyndasýningu í sýningarsalnum á 3. hæð Safnahússins. Á sýningunni má sjá 51 mynd eftir 26 félaga úr klúbbnum.
|
|
Fimmtudagur, 03. maí 2012 08:45 |
|
Þann 5. maí mun Sr. Sighvatur Karlsson opna málverkasýningu á efstu hæðinni í Safnahúsinu. Sýningin heitir 25+ í tilefni af 25 ára starfsafmæli Sighvats og verður þetta fyrsta einkasýning hans. Sýningin mun standa til föstudagsins 11. maí og verður opin daglega frá 15:00 til 18:00.
|
|
Miðvikudagur, 02. maí 2012 12:29 |
|
Sýningin Medio sem er sýning á mosaikverkum hefst kl. 14:00 miðvikudaginn 2. maí. í sýningarrými á jarðhæð í Safnahúsinu. Sýningin mun standa til 4. maí og verður opin frá 11.00-17:00.
 
Sýnendur eru notendur Miðjunnar og munu þau sýna mosaikverk sem þau hafa unnið í mars og apríl.
Verið velkomin. |
|
Fimmtudagur, 29. mars 2012 12:18 |
|
Ingvar Þorvaldsson opnar nk. laugardag 31. mars málverkasýningu í Safnahúsinu á Húsavík. Þar sýnir hann fjölmargar olíu- og vatnslitamyndir, en sýningin verður bæði í sýningarsal á efstu hæð og í sýningarrými á jarðhæð. Ingvar er fæddur og uppalinn á Húsavík og eru margar myndirnar hans héðan af heimaslóðum. Ingvar hélt sína fyrstu málverkasýningu hér á Húsavík og hefur síðan haldið yfir 40 sýningar víða um land.
Sýningin verður opnuð klukkan 15 á laugardaginn og verður opin til 9. apríl frá 15-18 alla daga. |
|
|
|
|
|
|
Síða 3 af 7 |