Fimmtudagur, 08. september 2011 00:00 |
Í starfi Menningarmiðstöðvar Þingeyinga er lögð mikil áhersla á fræðslustarf. Fyrir utan lögbundið fræðsluhlutverk safnsins er markmið safnsins að safnkosturinn sé gestum á öllum aldri til fróðleiks, skemmtunar og örvunar. Um þessar mundir er unnið að sérstöku verkefni innan stofnunarinnar varðandi móttöku skólahópa á öllum skólastigum. Einnig eru reglulega haldnir fyrirlestrar þar sem oft á tíðum er fjallað um sögu og menningu svæðisins.
Í bæklingnum “Fræðsludagskrá veturinn 2011-2012” hér að neðan, er að finna upplýsingar um skipulega fræðslu sem Menningarmiðstöð Þingeyinga býður upp á.

|