|
Sunnudagur, 08. júlí 2012 21:37 |
Safnaverðlaunin 2012

Byggðasafn Suður-Þingeyinga fékk í dag Safnaverðlaunin 2012 fyrir sýninguna "Mannlíf og Náttúra. 100 ár í Þingeyjarsýslum" í Safnahúsinu á Húsavík. Forseti Íslands afhenti forstöðumanni Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, Sif Jóhannesdóttir, verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að safnið hljóti verðlaunin fyrir nýja grunnsýningu sem ber yfirskriftina Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum og stendur í Safnahúsinu á Húsavík. Við gerð sýningarinnar er valin sú leið að draga upp mynd af sögu byggðarinnar í samspili manns og náttúru í stað hefðbundinnar aðgreiningar á menningu og náttúru. Menningarminjar og náttúrugripir eru þannig settir í nýtt og spennandi samhengi.
„Uppsetning sýningarinnar er þaulhugsuð og aðlaðandi. Sýningarrýmið er haganlega nýtt þannig að sýningargripir og textar vekja forvitni gesta. Sérkennum svæðisins og náttúrunýtingu eru gerð góð skil og á textaspjöldum eru frásagnir heimafólks sem gefa trúverðuga mynd og bregða ljósi á sögu svæðisins á tímabilinu 1850-1950. Að baki sýningarinnar liggur hugmyndavinna hóps einstaklinga sem koma úr ýmsum áttum og leggja til verkefnisins reynslu á sviði ólíkra fræðigreina, lista og hönnunar. Sú vinna skilaði sér í fjölbreyttri og ferskri nálgun og fleiri sjónarhornum en oft sjást í sýningum af þessum toga.
Það er mat dómnefndar að með sýningunni Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum sé sleginn nýr og hressilegur tónn í sýningargerð safna. Um leið og hefðbundnir rammar hafa verið víkkaðir út þá byggir sýningin á traustum grunni sem hefur myndast fyrir tilstuðlan ötuls söfnunarstarfs í rúm sextíu ár. Þrjú söfn hlutu tilnefningu til Safnaverðlaunanna 2012. Byggðasafn Suður-Þingeyinga fyrir endurnýjun á grunnsýningu í Safnahúsinu á Húsavík, Listasafn Einars Jónssonar fyrir innihaldsríka heimasíðu vel tengda hlutverki safnsins og markmiðum, Þjóðminjasafn Íslands fyrir Handbók um varðveislu safnkosts. Dómnefnd tilnefnir þrjú söfn og hefur til hliðsjónar innsendar hugmyndir en auglýst er eftir ábendingum frá almenningi, félagasamtökum og fagaðilum. Í ár bárust rúmlega fjörutíu ábendingar. Umsögn dómefndar um söfnin þrjú fylgir með í viðhengi ásamt sérstakri umsögn um vinningshafann,“ segir í tilkynningu.
|