|
Þriðjudagur, 20. apríl 2010 16:08 |
|
Gestir Safnahússins geta komið með sínar fartölvur og tengst internetinu á þráðlausu neti á neðstu hæð hússins. Á bókasafninu er seldur aðgangur að þráðlausa netinu og kostar hálftíminn 300 kr.
Í rýminu er einnig hægt að kíkja í dagblöð og tímarit.
Á bókasafninu, sem er einnig á neðstu hæðinni, eru einnig almenningstölvur sem fólk getur fengið aðgang að gegn vægu gjaldi.
|